Verkfræði chicks

19.12.2008 14:49:53 / heidrun

Partý!

Sælar, ef ekkert kemur upp á þá verður Klótóíðu partý hjá mér 28. desember!!
Takið frá kvöldið!

kv. Heiðrún

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2008 19:11:15 / heidrun

Jólapartý/hittingur:)

Sælar stúlkur, kominn tími á nýja færslu hérna ehaggi?

Er ekki tilvalið að ræða frekar tímanlega hvenær við ætlum að hafa crazy jólahittinginn okkar:) Spurning hvenær er von á öllum til landsins, ef þið komið til landsins um jólin yfirhofuð? Ég veit að Ingunn kemur því miður ekki til landsins þá:cry: Við (sem erum á landinu) höfum bara annan hitting þegar þú kemur, Ingunn.

Hvað viljiði gera, út að borða, eða bara partey eða bæði??? Endilega komið með hugmyndir. Ég verð allavegana alfarið flutt heim 16. desember, sjæse það bara er stutt í þetta.8| Þá verður búið að gera aldeilis fína íbúð heima hjá mér þar sem við getum haft teitið ef þið viljið!

Hlakka til að heyra í ykkur og vonandi gengur ykkur öllum vel og brosið í gegnum krepputíman heima:)

Heiðrún

Hver man ekki eftir síðasta jólapartýi:)


Hressar!


Hressari!


Hressastar:d





» 15 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 22:21:36 / inga

TIL HAMINGJU!

Elsku Ingunn mín/okkar (samt aðallega mín)
Innilega til hamingju með litla prinsinn! Hlakka til að sjá fullt af myndum (sem verða að sjálfsögðu komnar á netið innan tíðar) af litla kút!




Knús!
Inga (frænka) ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 10:23:46 / inga

Lunch later this week?

http://artfiles.art.com/images/-/Charles-Ebbets/Lunch-Atop-a-Skyscraper-c1932-Print-C10090221.jpeg



Takk fyrir geðveikt djamm stúlkur! Þetta var ekkert smá gaman og ber að endurtaka sem oftast!!
En er ekki annars bara snilld að reyna að hittast í vikunni í lunch?
Mæli ekkert sérstaklega með staðsetningunni sem þessir gaurar völdu sér, ekki að það væri ekki gaman að lunch-a í NYC...
Anyhow, place and time?
kv. Inga plögger

» 13 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 10:28:09 / heidrun

Partýið

Sælar stúlkur!

Ég vildi bara láta vita að afmælið byrjar kl. 20 heima hjá P&M. Hringið endilega ef þið ratið ekki! Hlakka til að sjá ykkur:)

kv. Heiðrún

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 11:10:51 / inga

25 ára afmæli!

Elsku Krulla!

Innilega til hamingju með 25 árin dúllan mín! Myndi knúsa þig ef ég gæti.. geymi það þanngað til í partei-inu! ;) Congrat!



"Afmælisknús"
Inga

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 11:47:10 / inga

Hádegishittingur...

Var ekki ákveðið í seinustu viku að hafa einn svoleiðis í vikunni... svona fyrir þær sem svikust um í seinustu og til að kíkja á börnin ;)
Sting upp á eldsmiðjunni á Suðurlandsbraut... en er opin fyrir öllu :)
Get það ekki á miðvikudag en hina dagana er ég nokkuð frí...
Hver er mem?
kv. Inga Planner númeró únó

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 09:15:12 / inga

mamma í kvöld...

http://cdn.7static.com/static/img/sleeveart/00/000/337/0000033764_350.jpg



Búnar að taka upp diskó gallann og komnar í abba fíling?
Eigum við að segja að við skellum okkur í smárabíó klukkan 20:00? Svo er það bara spurning um át...  hvað viljið þið borða gæskurnar eða viljið þið yfirhöfuð borða???
látið nú í ykkur heyra ;)
kv.
Ingsa


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 16:19:55 / heidrun

HÆ KJÚTÍPÆS:) - SMÁ TEITI

Sælar sætu!!

Hvað segiði? Nú styttist í það að maður kemur heim, bara mánuður! Lendi morguninn 14. ágúst heima!
Í tilefni af heimkomunni og stórafmælinu mínu náttúrulega:) Þá ætla ég að halda partý 15. ágúst at my parents house of course! Mig langaði að láta vita með góðum fyrirvara og það er akkúrat mánuður í þetta í dag, svo að þið getið tekið daginn frá:D
 
Hlakka ekkert smá til að sjá ykkur og vonandi getum við sem flestar hist þegar ég verð á landinu!!
Gleymdi að segja eitt, makar eru að sjálfsögðu velkomnir!!!

kv. Heiðrún
p.s. ekki gleyma færslunni hennar Ingu hérna fyrir neðan
p.p.s. væri sko alveg til í að fara á Mamma mia með ykkur


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 09:47:16 / inga

mamma mia

hæ gells... sem eru á landinu!
Hvernig lýst ykkur á að taka eitt kvöld frá í vikunni og fá okkur gott að borða og kíkja í bíó... það eru allir hérna í vinnunni að lofsyngja mamma mia og það er örugglega tilvalin svona group mynd ;)
hvernig lýst ykkur á???
kv. Inga

Ps. koma með uppástungur um tíma

» 8 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 14:03:37 / ingunn

RAMBÓ FÆDDUR

 Innilega til hamingju Ásta og Sveinbjörn með frumburðinn:d

Hlakka til að sjá myndir og auðvitað bera undrið augu.

Samkvæmt mínum upplýsingum fæddist hann rúmlega þrjú í nótt
og
var 15 merkur og 50cm.

Hafið það sem allra best og njótið lífsins. Þau eru svo fljót að stækka þessi yndi.



» 5 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 22:52:36 / inga

Sumarplön

Hæ sætu skvísur!

Mjög langt síðan eitthvað hefur verið skrifað á þessa blessuðu síðu...
En var að spá hvort það væri einhver vegur fyrir okkur að hittast eitthvað í ár? :whut:
Það væri ekkert nema bara snilld ef það væri einhver einn dagur eða eitthvað í haust kannski eða í sumar sem við gætum allar hisst og jafnvel gert eitthvað crazy.... mér dettur í hug, óvissuferð eða eitthvað fáránlegt og þó það væri ekki nema kokteilparty ;)
Anyhow endilega commentið og látið vita hvort og hvenær þá þið verðið staddar á Íslandinu..
Ég sjálf verð hér á landi til 7.sept fyrir utan 10 daga  í lok maí/byrjun jún. Svo eruð þið náttúrlega velkomnar til Skotlands. (Þið vitið að það er fátt heitar en skotar ;) ja nema kannski skotar í pilsum )


Hvað um það endilega látið vita og komið með hugmyndir um eitthvað snilldarlegt ;)

kv. Inga


» 12 hafa sagt sína skoðun

29.03.2008 19:35:43 / heidrun

AFMÆLI!!

Innilega til hamingju með 25 ára stórafmælið Ingunn!!
Vonandi áttu góðan dag kjútípæ:d

kv .Heiðrún


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 16:29:44 / rosa

Myndir!!!

Sælar skvísur!

Þá er ég loksins búin að búa til myndaalbúm fyrir okkur með lykilorði...og búin að uploada mínum myndum úr jólapartýinu.

Slóðin er: picasaweb.google.com

Notendanafnið er klotoidurnar og lykilorðið er nafnið á vinningsliðinu í actionary (s***b*****). Ásta og þær sem voru of fullar til að muna nafnið geta spurt hinar eða sent mér skilaboð :D

Ef þið hafið fleiri myndir frá þessum eða öðrum viðburðum getið þið sent mér þær á rosinros@gmail.com og ég skal uploada þeim. Annars getið þið downloadað Picasa forritinu (ókeypis í gegnum google) og uploadað beint í gegnum það, sem er mjög einfalt þegar maður er búinn að læra á það.

Ástarkveðja,

Rósa


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 19:27:13 / gudrun

Takk fyrir síðast !!

100% mæting!

100% gellur!

100% skemmtun! 

 

 

Þetta var algjör snilld! Takk fyrir mig! Er nýbúin að jafna mig eftir æsinginn í Trivialinu :) 

 Í þessu albúmi eru fleiri myndir frá partýinu!


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Könnun
Ísland í sumar
Ójá
5 atkvæði

Ókei
1 atkvæði

Ónó
0 atkvæði

dÓn't nÓ
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 6